Ég heiti Sigrún Helga Indriðadóttir, borin og barnfædd Skagfirðingur. Ég hef alltaf haft
mikinn áhuga á hvers kyns handverki og listsköpun.
Ég er stúdent og garðyrkjufræðingur að mennt en hef auk þess sótt ótal námskeið í handverki s.s. leðurvinnu, þæfingu, pappírsgerð, skrautskrift, silfursmíði, körfugerð, tálgun og vinnslu úr hornum og beinum.
Ég bý í Skagafirði, á Stórhóli í Lýtingsstaðhreppi hinum forna. Maðurinn minn er Þórarinn Sverrisson og saman eigum við 5 börn fædd 1997 - 1999 - 2001 - 2004 og 2011. Við búum með kindur, hross, hænur og endur. Við erum félagar í samtökunum BEINT FRÁ BÝLI www.beintfrabyli.is og seljum handverk undir gæðamerki félagsins.
Ég er mikið náttúrubarn og hef mikið dálæti á að vinna úr náttúrulegu hráefni, sér í lagi íslensku. Ég nota eins mikið af hráefni af eigin býli eins og kostur er. Skinn og húðir eru sútaðar fyrir mig hjá Loðskinni og Sjávarleðri á Sauðárkróki. www.atlanticleather.is Annað verka ég sjálf. Ég hef einnig mikinn áhuga á endurvinnslu og endurnýtingu hráefnis og bý t.d. til pappír sem ég nota m.a. í myndverk og kort.

