Eyrarrós er skemmtileg prjónauppskrift þar sem innblástur er sóttur í íslenska náttúru, Eyrarrósina (Epilobium latifolium) þar sem hún fangar augað með litskrúði sínu í grárri og svartri auðninni. Hver "Sauðakassi" inniheldur grunnlit úr sauðalitunum og regnbogalitað sauðaband í munstrið.